Nordic design+

Mikið úrval mismunandi glerja í Nordic design+ vörulínuna.

Staðlað gler sem notast er við er gasfyllt tveggja laga glært gler með mjög góðri hljóð- og varmaeinangrun. Hægt er að fá þriggja laga gler fyrir aukna varmaeinangrun. Margir mismunandi möguleikar eru á að fá sérsniðið gler eftir þínum óskum þegar þú verslar Nordic design+ vörur hjá okkur í Gluggaumboðinu. Sjá nánari útlistun hér að neðan.

Dökkt endurskinsgler í nútímalegum glugga

Öryggisgler

Hert gler, lagskipt gler eða hvort tveggja. Dregur úr slysahættu ef glerið brotnar og ver eignir gegn skemmdarverkum og innbrotum. Úrvalið fer eftir því öryggi sem þarf.

Sólvarnargler

Síar UV geisla sólarinnar, heldur jafnari hita inni. Mælt er með að nota sólvarnargler í rýmum sem hitna mikið upp vegna sólargeisla.

Hljóðeinangrandi gler

Dregur úr umferðarhávaða. Úrvalið fer eftir þeirri hljóðdempun sem óskað er. Glerið endurkastar hljóði til baka og dregur hluta þess í sig.

Sjálfhreinsandi gler

Sérstök húð sem hentar hærri húsum þar sem erfitt er að þrífa. Dagsbirta og regn brjóta niður lífræna óhreinindi. Glerið þornar hraðar og skilur eftir færri rákir.

Þokuvörn

Ytri þétting er algeng að vori og hausti á vel einangruðum gluggum og hurðum. Þokuvörn dregur úr henni og heldur útsýninu skýru.

Skreytingargler

Mynstrað gler sem mótar útlit glugga og hurða og gefur næði þar sem þess er óskað.

Myndirnar eru til leiðbeiningar. Litur og mynstur geta verið örlítið frábrugðin glerinu sjálfu.

Í stað glers er hægt að fá spjald með pressaðri XPS einangrun. Slíkt er oft notað í neðri hluta hurða og glugga og þar sem skera þarf úr fyrir loftbarka, kattarlúgu og fleira. Spjöld fást í öllum sömu litum og hurðir og glugga. sjá litaúrval hér

Hafa samband

Skilaboðin opnast í tölvupósti til [email protected].